Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Sá sem gaf þér ljósið

 

Bubbi - Allar áttir
Allar áttir 1996

Lag og texti: Bubbi Morthens

Bókin segir allt sem er
allt sem er býr í þér.
Þú ert hann, hann ert þú.
Hamingjan er hin sanna trú.

Bókin segir allt sem er
allt sem er býr í þér.
Elska skaltu náungann
elska skaltu náungann.

Vita skaltu vinur minn
fyrir ofan himininn
er einn sem ofar öllu er
sá sem gaf þér ljósið.

Faðir regnsins og regnbogans
réttlát eru verkin hans
trjánum gaf hið græna lauf
gegnum myrkrið ljós hans smaug.

Þröngur virðist vegur hans
sá vegur er leiðin til sannleikans.
Orð hans gefa og færa frið,
faðirinn vakir þér við hlið.

Faðir tímans og alls sem er
faðir þess góða sem grær í þér.
Þjófur eða kóngur hann krýnir þig
í kærleikans nafni snerti mig.

Þeim sem áttu enga von
ást sína gaf hann og sinn son.
Menn benda á þig og gera grín
þessi gaf herranum árin sín.

Bókin segir allt sem er
allt sem er býr í þér.
Þú ert hann, hann ert þú.
Hamingjan er hin sanna trú.

Bókin segir allt sem er
allt sem er býr í þér.
Elska skaltu náungann
elska skaltu náungann.


Vinsældalistar
#26. sæti DV - Íslenski listinn (18.10.1996) 4. vikur á topp 30 

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.