Lag og texti: Bubbi Morthens
Í rökkrinu héldu hrafnarnir til
á hendi voru með dauðs manns spil.
Ég sat sem fastast og fölleitur sá
að fyrsta sögnin geymdi ása þrjá
og ég vissi ég hafði valið rangt borð.
Með tóma vasa vonlaus ráfa um
verð að koma mér frá skuldunum
hér bíður aðeins eymd og kvöl.
Ljósaskiltin sýnast sjúk og föl
og ég vissi ég hafði valið ranga borg.
Það dugar ekki lengur
að ljúga svona drengur
á fyrsta farrými út í tómið.
Samt líður þér vel
en þarna úti ríður enginn
klofvega neinum sel.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





