Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Hvað er töff við það í snöru að hanga

 

Bubbi - Allar áttir
Allar áttir 1996

Lag og texti: Bubbi Morthens

Reykjavík er ekki lengur lítil saklaus borg
með ljósum prýddar götur, hrein og fögur torg.
Atvinnuleysisdraugurinn á daginn hefur hljótt
en dæmir menn á nóttinni og étur þeirra þrótt.
Börnin eru á götunni og gatan kennir þeim
að grimmdin er vörn þeirra sem aldrei fara heim.

Menn bjóða upp á amfetamín, alsælu og hass
allt sem hugur girnist, jafnvel lítinn snotran rass.
Þrýstingur frá félögum, svona fljótur taktu einn
finndu þú sekkur maður sekkur eins og steinn.
Það er betra að vera dópaður og dreyma um annan heim.
Drukkin mamma hvíslar: Strákur, þú ert einn af þeim.

Hvað er töff við það í snöru að hanga hlandblautur og dauður
hvað er töff við það í kistu að liggja fjólublár og rauður.
Það er enginn sigur í orðum þeim að hvísla: ókei
töffari er sá sem þorir upphátt að segja: nei.

Átta stunda vinnudagur, hvern dreymir ekki um það
draumurinn að geta lifað og átt sinn sama stað.
Þó þú vinnir myrkra á milli þá færðu aldrei frið
fyrir reikningum sem enda sem krabbi í þínum kvið.
Orðin þylur þreyttur faðir fúllyndur og strangur
fölur strákur veit hvað er að vera í hjarta sínu svangur.

Flótti, flótti eitrið mjúka, má ég ekki dauðann strjúka
myndir, myndir úr pípu rjúka samt læknar ekki hjartað sjúka.
Brennivín sem vímugjafi er eins og hægri höndin á Tyson
þeir sem halda að þeir geti unnið þeir lifa í falskri von
það skiptir ekki máli hvað allir hinir krakkarnir halda
eitrið lætur börnin sín með heilsu sinni gjalda.

Skólinn er martröð þar sem grimmdin gleypir þá smáu
ræfilslegur í tíma situr hann með baugana sína bláu
enginn fókus, engin skerpa, skelfing festir rætur
sem skuggi fölur ungur maður reynir að fara á fætur
frelsi er að geta sagt mig langar ekker í
frelsi er að geta sagt mig langar ekker í.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

Athugasemd:

Lagið kom einnig út á kynningarmyndbandi sem kallaðist Þorir þú að segja nei og var gefið út af Krossgötum. Þar er Gulli Briem sagður eiga lag en Bubbi texta og söng. Þessi útsetning kom einnig út á Ferming 87 (1997) og á DVD safnplötunni 2010.

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.