Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Jarðaför Bjössa

 

Bubbi - Allar áttir
Allar áttir 1996

Lag og texti: Bubbi Morthens

Sjáðu nú Bjössi, hann brosir við þér
og býður þér hrímgráan reykinn.
Meðan þú dvaldir með oss hinum hér
og hugrakkur gekkst í leikinn
línur á speglum þig kölluðu á
kókið svo hreint var erfitt að fá
og nú fer
og nú fer kistan þín niður.

Þitt fríða andlit með æskunnar þrótt
bar engin þess merki í fyrstu
þó víman hjá þér dveldi nótt eftir nótt
og nautnirnar sál þína gistu.
Allar þær konur sem bældu þín beð
grátandi standa og fylgjast með
þegar kistan
þegar kistan þín fer niður.

Andlit þitt breyttist og brosið varð stirt
og blóð þitt rann hægar en áður.
Aftan í þitt líf lyginni var spyrt
lúinn þú varst og þjáður
Spilin sem þú hafðir duga ekki hér
þó drógum við ásinn til að fylgja þér
og kistunni
og kistunni þinni niður.

Nú stirður og kaldur í kistunni ert
karlinn, þar færðu friðinn
farinn ertu, en enginn veit hvert
eflaust sú ferð verður liðin
þegar presturinn mælir: drottinn minn
og moldin fellur á kassann þinn
og kistuna
og kistuna þína hylur.

Dauðans klukkur kveða sinn dóm
krossi þínum yfir þær hringja
En ef heyrir þú Bjössi bjöllunnar róm
og bræður þína reyna að syngja
þá trúlega veistu við troðum í eina
og tyllum okkur brosandi á letraða steina
og blásum
og blásum á eftir þér niður.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.