Lag og texti: Bubbi Morthens (textinn byggður á gömlu vikivakakvæði)
Nú sitja þeir og drekka drauma úr glösum
drengirnir með slifsin og kollvikin há.
Á stalli sínum háum híma þeir fölir
og horfa niður mannheima á.
Hér komst ekki gleðin á
elskulega systir.
Við skulum dansa betur þegar birtir.
Nætur langar reika með rauða hvarma
raunaleg eru hljóðin sem hljóma þeim frá.
Þeir seldu landið, logar gull í haugum.
Lifandi dauðir friðinn sinn fá
Nú sitja þeir og drekka drauma úr glösum
drengirnir með slifsin og kollvikin há.
Holir eru að innan, enga hafa skugga.
Aldrei í mannheimum dansað þeir fá.
Aldrei í mannheimum dansað fá dauðir.
Dagana björtu aðeins geta þráð.
Hefnist þeim sjöfalt sem svíkja landið.
Svitna þá í víti, hljóta enga náð.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





