Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Hvað kemur mér það við

 

Bubbi - Sól að morgni
Sól að morgni 2002

Lag og texti: Bubbi Morthens

Við lifum á tímum tómleika og kvíða.
Töfrarnir virka ekki lengur.
Lífið er metið sem tap eða gróði.
Í myrkri aleinn maðurinn gengur.
Munaðarlaus lítill drengur.

Við lifum á tímun trúleysis og heimsku.
Tölum um frelsi til að velja.
Dauðann í formi ofáts eða drykkju
og menga landið og selja.
Ímynd þess á leið til heljar.

En hvað kemur mér það við
en hvað kemur mér það við
ég hugsa um mig og mína.

Við lifum á tímum taumlausrar græðgi.
Tómið í hjartanu stækkar.
Uns vitið bilar og ekkert er eftir.
Nema ruslahaugur sem hækkar.
Og haf þar sem fiskunum fækkar.

Við lifum á tímum tapaðra gilda
trúum álfa og Kára.
Bjóðum til landsins slökkvara ljóssins
og keyrum höfuð niður í nára.
Niðri í klofinu er frelsisára.

En hvað kemur mér það við
en hvað kemur mér það við
ég hugsa um mig og mína.

En hvað kemur mér það við.
Hvað kemur mér það við.
Ég hugsa um mig og mína
ég hugsa um mig og mína
ég hugsa um mig og mína.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

Athugasemd

Kaupendum plötunnar Sól að morgni var boðið að afrita fimm kassagítardemó sem tilheyrðu þessari plötu, af heimasíðu Skífunnar. Þetta var eitt þeirra laga.

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.