Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Þá verður gaman að lifa

 

Bubbi - Sól að morgni
Sól að morgni 2002

Lag og texti: Bubbi Morthens

Í þorpi úti á landi er lífið svona
þar leyfa menn sér að dreyma og vona
að verksmiðja rísi og reysi við bæinn
með rífandi vinnu allan guðslangan daginn
og þá verður gaman að lifa
og þá verður gaman að lifa
og þá verður gaman að lifa.

Í þorpi úti á landi lærir ungur maður
að litla þorpið sé hans staður.
Ég hef ekkert fyrir sunnan að sækja.
Það er sjálfgefið allsengin flækja.
Mér þykir hér gott að lifa
mér þykir hér gott að lifa
mér þykir hér gott að lifa.

Í þorpi úti á landi,litlu börnin spyrja.
ljóshærð saklaus,hvenar skal byrja
Að smíða álver úti við fjörðinn?
Stóreygt gap. Er það stærra en jörðin?
og þá verður gaman að lifa
og þá verður gaman að lifa
og þá verður gaman að lifa.

Í þorði úti á landi sjóða menn slátur.
Á sjónum hímir kvótalaus bátur.
þar máfurinn grætur og goggar í stálið
með galtómann maga hann spáir í málið.
Er nokkuð hér gaman að lifa
er nokkuð hér gaman að lifa
er nokkuð hér gaman að lifa

Í þorpi úti á landi flýr fólkið suður.
Það fást víst í borginni heitar kruður.
Þar er betra að dorma í einangrun inni.
Með átján rása sjónvarpsminni.
Í borginni er betra að lifa
í borginni er betra að lifa,
í borginni er betra að lifa.

Í þorpi úti á landi er lífið svona.
Þar leyfa menn sér að dreyma og vona.
Því ráðherraflokkur flytur þeim sönginn.
Í fjallið við borum þá hafið þið göngin
og þá verður gott að lifa
og þá verður gaman að lifa
og þá verður gaman að lifa
og þá verður gott að lifa
og þá verður gott að lifa.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

Athugasemd

Kaupendum plötunnar Sól að morgni (2002) var boðið að afrita 5. demóupptökur sem tilheyrðu plötunni af heimasíðu Skífunnar. Þetta var eitt þeirra laga.

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.