Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Þú ert

 

Bubbi - Ást
Ást 2005

Lag og texti: Bubbi Morthens

Þú ert eins og vindurinn og kælir mig niður
þú ert eins og sumarið hiti og friður
þú ert eins og vorið björt og fríð
í skugga þínum ég brosi og bíð.

Þú ert eins og vatnið kitlandi svalt
þú ert eins og stálið blikandi kalt
þú ert eins og silkið svo undurmjúkt
sál mín af ást til þín er sjúk.

Þú bara ert
þú bara ert
þú bara ert og það nægir mér.

Þú ilmar sem hafið þungt og sætt
ilmar eins og barnið sem er nýfætt
þú ilmar sem öspin eftir rigninganótt
hjarta mitt slær taktfast og rótt.

Þú ert eins og moldin frjó og góð
þú ert full af lífi og eldmóð
þú ert eins og barnið og spyrð um allt
í skugga þínum er alltaf svalt.

Þú bara ert ...

Þú ert eins og tunglið og togar í mig
þú ert eins og eldur og ég elska þig
þú ert spör á orðið sem ég þrái að heyra
ég bragðaði á þér og ég vil meira.

Þú bara ert...

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.