Lag: Bandarískt þjóðlag, texti: Pétur Þórarinsson
Í bljúgri bæn og þökk til þín
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
Ég rata oft á ranga leið
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt, sem miður fer
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósi mér
ég betur kunni þjóna þér,
því veit mér feta veginn þinn
að verðir þú æ Drottinn minn.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
- Ýmsir - Íslandslög 5, Í kikrjum landsins (2000)
- Ýmsir - Pottþétt gospel (2001)
- Ýmsir - Íslandslög 1-6 (boxset 2007)
- Ýmsir - Íslandslög 1-7 (Boxset, 2008)