Lag Magnús Þór Sigmundsson, ljóð: Margrét Jónsdóttir
Ísland er land þitt, og ávalt þú geymir
Ísland í huga þér hvar sem þú ferð.
Ísland er landið, sem ungan þig dreymir
Ísland í vonana birtu þú sérð.
Ísland í sumarsins algræna skrúði
Ísland með blikandi norðljósatraf
Ísland er feðranna afrekum hlúði
Ísland er foldin, sem lífið þér gaf.
Íslensk er þjóðin, sem arfinn þinn geymir
Íslensk er tunga þín skír eins og gull
Íslensk sú lind, sem um æðar þér streymir.
Óslensk er vonin af bjartsýni full.
Íslensk er vornóttin albjört sem dagur
Íslensk er lundin með karlmennsku þor.
Íslensk er vísan, hinn íslenski bragur.
Íslensk er trúin á frelsisins vor.
Ísland er land þitt, því aldrei skalt gleyma.
Íslandi helgar þú krafta og starf.
Íslenska þjóð, þér er ætlað að geyma
Íslenska tungu, hinn dýrasta arf.
Ísland sé blessað um aldanna raðir
Íslenska moldin, sem lífið þér gaf
Ísland sé falið þér, eilífi faðir.
Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum