Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Heilræðavísur

 

Bubbi - Fingraför
Fingraför 1983

Lag og texti: Megas 

Ef þú ert þjakaður þrúgandi fargi
en þraut þína kann enginn né vill gútera
og illra geðlæknanna ólyfjan grimmri
en þinn ömurleik kalla menn vesöld einbera
þá droppaðu við hjá dópmangaranum
og kýldu á netta nös.

Já og ef þú ert sligaður eymd þinnar stöðnunar
eyddir innheimar og sviðnir þeir þegja
og ef hugur þinn reikull sem horfinn burt var um stund
hefur heimsnúinn svo frá engu að segja
þá droppaðu við hjá dópmangaranum
og kýldu á netta nös.

Og ef þínar læturu auðnirnar buga þig
innantóma steinsteypuna malbikið
gapandi tóftir hvar loftsteinar lentu
líf þitt er grátt endalaust hyldjúpt sem rykið
þá droppaðu við hjá dópmangaranum
og kýldu á netta nös.

Og ef þó lausum við þrúgandi þunglyndi
þokukennd ekki eind hernemur geð þér
og hugmyndir þær kvikna engar nei aldrei meir
allt slokknað það sem þá bjó innra með þér
þá droppaðu við hjá dópmangaranum
og kýldu á netta nös.

Og ef að ending loks samdauna ert orðinn því frostmarki
er andleg hræring þín nú dvelur á
og átt ekki framar meir yfir að ráða
þeim andspyrnu neista er þér leyndist með þá
þá droppaðu við hjá dópmangaranum
og kýldu á netta nös.

En ef þú foraktar orð mín og heilræði
ætlar þig fínni en svo - þá gott og vel
þá skaltu útskrifa þig og það endanlega
af áttundu hæðinni á strandhótel.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

 

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.