Lag og texti: Bubbi Morthens
Þegar þú komst af veiðum með nýskutlaðan sel
sólahringum saman í leyni, slydda stormur og él.
Þegar hafísinn kom inná firðina hvarf selurinn á brott
ísinn var of þykkur fyrir rostungana, hundarnir dóu, þið liðuð skort.
Ó, þú mikli veiðimaður, það er sárt að horfa á.
Þeir troða ykkur niður í svaðið, rífa upp með rótum liðin ár.
Dóttursynir þínir fara aldrei á veiðar, eða við náttúruna takast á.
Ryðgaðir sleðans meiðar, minningar um horfin ár.
Þegar námurnar dóu, flutti draumurinn sig úr stað.
Tómar tóftirnar hlógu, á hnjánum trúboðinn bað.
Til Danmerkur með stóra drauma, stórir draumar kosta mikið fé
kynþáttahatrið þar kraumar, við viljum enga skrælingja hér.
Landi og þjóð í helgreip haldið, í staðinn fáið þið brennivín og hass.
Danskt er yfirvaldið sem heimtar að sleiktur sé sinn rass.
Þegar vitund þjóðar þinnar er að vakna, horfir þjóð mín í aðra átt.
Húðlit sínum hún hampar, sem er hvítur, þú veist við hvað er átt.
Fyrirgefðu þjóð minni kæri bróðir.
Því hún stígur sinn eigin djöfladans.
Hún vill ekki sjá eymd þína bróðir.
Því hún samþykkir verk kúgarans.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





