Lag og texti: Bubbi Morthens
Ég veit það er erfitt
ég veit það er sárt
að lifa og finna til.
Lífið er nakið og miskunnarlaust
hjá öllum þó rofar til.
Ég veit það er erfitt
ég veit það er sárt
að lifa og finna til.
Ég veit það er erfitt
að standa og brosa
svigna meir og meir.
Sum okkar eru gerð eins og bambus
hin brotna eins og sykurreyr.
Flóttinn, já flóttinn
frá okkur sjálfum
flóttinn frá okkar eigin dóm.
Enginn þorir lengur að vera hann sjálfur
af hræðslu við almannaróm.
Það leggur enginn línuna
leiðina réttu velur enginn nema þú.
Ef þú velur leiðina réttu
mun hún reynast þér erfiðust leiðin sú.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





