Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Jakob Timmerman (Argentína)

 

Bubbi - Ný spor
Ný spor 1984

Lag og texti: Bubbi Morthens

Ég man daginn sem þeir komu
voru akandi á svörtum bíl
í síðum leðurfrökkum voru
ég man frakkarnir voru í stíl.
Það var bundið fyrir augun
mér var hrint niður stigann
úti var hiti og sól.
Enginn þorði að spyrja hvert farið væri með hann
það þekktu allir terrorinn, þess konar tól.

Þú ert ákærður fyrir brot á lögum landsins
við jörðum þig í gaddavír.
Þú ert ákærður fyrir brot á lögum fólksins
við skírum þig í gaddavír.
Á nóttinni heyri ég hrópin í hinum
það eru mörg afbrigði af sársauka til
ég fann lykt af blóði í voninni
þeir fengu mig til að játa - hér um bil.
Oft hugsa ég um ykkur hin fyrir utan
oftast hugsa ég hvenær koma þeir næst
þegar þeir koma bið ég bæn til herrans
hún kemst ekki út því öll hlið eru læst.

Þú ert ákærður fyrir brot á lögum landsins
við skírum þig í gaddavír.
Þú ert ákærður fyrir brot á lögum fólksins
við jörðum þig í gaddavír.

Á nóttinni smala þeir fólkinu saman
suma sjáum við aldrei meir.
Fyrir utan borgina leggja þá föla á magann
hnakkaskot grár sandurinn verður að rauðum leir.

Þú ert ákærður fyrir brot á lögum landsins
við jörðum þig í gaddavír.
Þú ert ákærður fyrir brot á lögum fólksins
við skírum þig í gaddavír.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.