Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

ónefnt 26. janúar 2009

Lag og texti: Bubbi Morthens

Það er myrkur og maðurinn sefur
óvær undir sæng
Á tjörninni er önd undir brúnni
örmagna með brotin væng.

Börnin og konan þau kúra
kannski var ekkert að
Samt eitthvað lá í lofti
Á hnjánum einhver bað.

Það er vetur og vindurinn næðir
Volaða ísaða land
Jakkalakkarnir í brúnni
búnir að sigla í strand.

Það er vetur og vindurinn næðir
Vonin er hnýpin og aum
Þeir hnýttu þjóðinni snörur
og ráku út í óvæðan straum.

Og fólkið er fallbyssufóður
og þeir fyrstu sem fara í kaf
verða Gummar, Jónur og Gunnur
en þeir seku komast alltaf af.

Heimili landsins hrynja
Vígvöllinn finnur þú þar
og bankinn sem blóðið þitt drekkur
er að hirða úr þér taugarnar.

Það er vetur og vindurinn næðir
Volaða ísaða land
Jakkalakkarnir í brúnni
búnir að sigla í strand.

Það er vetur og vindurinn næðir
Vonin er hnýpin og aum
Þeir hnýttu þjóðinni snörur
og ráku út í óvæðan straum.

En lífið það áfram rúllar
Ástin blómstrar hvern dag
Börn halda áfram að fæðast
og vorið á ósungið lag.

En þingmenn í öllum flokkum
eiga sinn hrollkalda draum
og þurfa hann aldrei að borga
né vaða hinn óvæða straum.
Það er vetur og vindurinn næðir
Volaða ísaða land
Jakkalakkarnir í brúnni
búnir að sigla í strand.

En þingmenn í öllum flokkum
eiga sinn hrollkalda draum
og þurfa hann aldrei að borga
né vaða hinn óvæða straum.

Athugasemd

Frumflutt í Færibandinu 26. janúar 2009

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.