Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Giftu þig 19

 

Das Kapital
Lili Marlene 1984

Lag og texti: Bubbi Morthens

Dimmir dagar allir eins
kalt loftið syfjaðan bítur
að streðast á móti er ekki til neins.
Þú verður að vinna, binda járnið maður.
Þú hefur enga menntun til að ganga um gólf
í jakkafötum brosa vera glaður.
Þú þarft að þræla frá átta til tólf.

Passaðu þig drengur, þú sekkur inn í munstrið
íbúðarkaup eru fyrir veika menn.
Vara þú þig drengur, þú sekkur inn í hulstrið
flýttu þér að synda það er tími til þess enn.

Við járnið þú stendur lætur þig dreyma
um staði sem þú hefur engin efni á.
Eins og allir hinir þú verður samt að reyna
að sleppa í gegnum þessi ár.

Helgarnar þær fara í að leggja saman tölur
mínusa og plúsa og vídeógláp.
Stundum læturðu það eftir þér að fara út að djúsa
vaknarðu síðan þunnur upp með tóman ísskáp.

Passaðu þig drengur, þú sekkur inn í munstrið
íbúðarkaup eru fyrir veika menn.
Vara þú þig drengur, þú sekkur oní í hulstrið
flýttu þér að synda það er tími til þess enn.

Hvert sinn sem þú vaknar, lítur út um gluggann
blasir við svart tóm með stórhríð.
Bölvandi þú grefur fésið oní koddann
veist að þú munt tapa ef þú ferð ekki í stríð.

Fyrr en varir er rómantíkin dáin
brúðkaupsgjafir fánýtt drasl
Þú finnur að er ekki lengur sama þráin
sem fær þig til að vakna upp og byrja þitt basl.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

Das Kapital - Lili Marlene (1984)

Bubbi - Blús fyrir Rikka (1986)*

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.