Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Aldrei fór ég suður

Bubbi - Dögun
Dögun 1987

Sjá myndband við þetta lag á Tónlist.is HÉR

Lag og texti: Bubbi Morthens 

Ég vakna oftast þreyttur, varla með sjálfum mér.
En ég veit það er til annað líf en það sem ég lifi hér.
Og þrá mín hún vakir, meðan þokan byrgir mér sýn
mig þyrstir í eitthvað annað en gúanó, tékka og vín.

Á fiskinum lifir þorpið, þorskurinn er fólkinu allt.
Það þrælar alla vikuna, vaðandi slor og salt.
Við færibandið standa menn en þeir finna þar enga ró
flestir þeir ungu komnir suður þar sem að draumunum er nóg.

Langa dimma vetur vindurinn smaug í gegnum allt.
Kannski var öllum öðrum hlýtt en mér var allaveganna kalt.
Það biðu allir eftir sumrinu en biðin var löng og ströng
bátarnir lágu tómir við kajann í kinnungunum söng.

Faðir minn átti drauma sem dóu fyrir lítið fé.
Mig dreymdi um að verð’að manni en ég náði honum aðeins í hné.
Ég gleymi seint þeim augum, gínandi botnlaust tóm
gamall maður fyrir aldur fram með brostinn hrjúfan róm.

Þegar ég var rétt orðinn sautján, um sumarið barst mér frétt
að sæta dúkkan hans Bensa í Gröf væri orðin kasólétt.
Næturnar urðu langar, nagandi óttinn með
negldur ég gat ekki tekið til baka það sem hafði skeð.

Aldrei fór ég suður, alltaf skorti mig þor.
Hvert einasta sumar var því frestað, svo kom haust og svo vetur og vor.
Nú er ég kominn á planið og ég pæli ekki neitt
ég pækla mínar tunnur fyrir það ég fæ víst greitt.

Ég hugsa oft um börnin mín, bráðum kemur að því
að þau bíða ekki lengur, þau fara, hér er ekkert sem heldur í.
Enn koma tómir bátarnir og bræðslan stendur auð.
Baráttan er vonlaus þegar miðin eru dauð.


Vinsældalistar
#1. sæti DV - Rás 2 (27.11.1987) 9. vikur á topp 10
#1. sæti DV - Íslenski listinn (27.11.1987) 10. vikur á topp 10 

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.