Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Agnes og Friðrik

 

Bubbi - Ísbjarnarblús
Ísbjarnarblús 1980

Lag og texti: Bubbi Morthens

Kalt blés norðanvindur, janúarmorgun
er Agnes og Friðrik lögðu af stað.
Kaldur stóð bændaskarinn þeim var vorkunn.
Skelfdir horfðu á axarinnar blað.

Natans bróðir fylltur beisku hatri.
Hönd Friðriks köld sem á ná.
Presturinn hvíslar „ljúkum þessu af í snatri.
Höggðu vel svo drottinn megi sjá“.

Friðrik fölur stóð uppí vindinn.
Orð prestsins féllu frosna jörðu á.
Bændur stundu: „Stór er syndin“.
Er Friðrik lagði höfuð sitt stokkinn á.

Tryllt af ótta Agnes frá sér barði
er höfuð Friðriks búknum rúllaði frá.
Blóðhlaupin augu, slef úr vitum hennar lagði
Rósin Kiðjaskarðs varð eins og hrímgrátt strá.

Breiðabólsprestur með konungs snaps í hendi
skipaði Agnesi að standa, en Agnes lá.
Yfirvald Blöndal böðlinum brennivín sendi
til að bægja efanum sálu hans frá.

Hjalandi eins og smábarn á dauðan hún starði.
Með afli þeir létu hana krjúpa fótum hans hjá.
Blöndal keikur stóð á hæsta garði,
og öskraði: „Bændur lítið upp, þið skuluð fá að sjá“...

Natans bróðir allan sinn styrk í höggið lagði.
Blóð og þvag slettist frosinn mel á.
Bændaskarinn stundi þungt, en í þetta sinn þagði.
Þegar höfuð þeirra á stöngum fóru þar hjá.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.