Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Við Gróttu

Bubbi Sól að morgni
Sól að morgni 2002

Sjá myndband við þetta lag á Tónlist.is HÉR

Lag og texti: Bubbi Morthens

Í rauðbláu húmi sólin sest niður
yfir sjónum er miðnæturfriður
þar er vitinn sem vakir allar nætur.
Varlega aldan snerti okkar fætur.
Sporin í sandinum hverfa eins og árin
eins hefur gróið yfir gömlu sárin.

Og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég
og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég.

Dimmblá skýin skreyta sjónarhringinn.
Þú skoðar sem barnið þarabynginn
og hlátur þinn fyllir mig fögnuði þess
sem finnur að lífið hefur valið honum sess
við hlið hennar allt þar til lífinu lýkur.
Að lifa með henni það er að vera ríkur.

Og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég
og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég
jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég.

Svo loka ég augunum örlitla stund
augnablikið á sinn hljóðláta fund.
og hjartað hvíslar ástin er göldrótt
og hafið verður eitt augnablik hljótt.
ást okkar er orðin stór og sterk.
Ég elska þig mitt fallega furðuverk.

Og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég
og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég
og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég
jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.