Lag og texti: Bubbi Morthens
Trúir þú því sem þú lest?
Prentsvertan í augun sest.
En þér sama svo lengi sem þú ert látinn í friði
allt fyrir utan er á öðru sviði.
Ég skipti mér ekki af annarra manna málum
ég vil dansa í friði á ísnum hálum.
Fá að vera í friði fyrir Pétri og Pálum
meðan ég dett ekki er mér sama um þig.
Þú vinnur frá átta til fimm
stundar lukkujóga og trimm.
Og veist þú ert ekki orðinn ánægður
samt ertu orðinn gráhærður.
Betur á þig kominn en nágranninn
samt eitthvað vantar öll árin
og þú átt stærsta bílskúrinn.
Börnin þín fullkomin
punktur, komma, pass.
Sonurinn sniffar ekki lím
né reykir hass.
Dóttirin er í Kvennó
lætur ekki drátt.
Eiginkonan svífur um og segir heldur fátt.
Þú ert betur gefinn en nágranninn
stoltið er feita græna bankabókin
og þú átt eina Jagúarinn.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum