Lag og texti: Bubbi Morthens
Ég hlusta á Zeppelin og ég ferðast aftur í tímann.
Þú spyrð mig hvar er gimsteinninn í augum þínum ljúfan?
Svitinn perlar á brjóstum þínum þú bítur í hnúann
þú flýgur á brott með syndum mínum, Svartur afgan.
Ég elska þig svo heitt að mig sundlar og verkjar.
Í faðmi þínum þú lætur mig finna til sektar.
Útí horni liggur kisi þinn og malar
inni á baðherbergi stendur vofan þín og talar.
Úti hamast regnið við að komast inn til þín.
Ég skríð undir sængina heyri hvernig stormurinn hvín.
Drottningin með stríðsfákana sína bíður okkur inn til sín.
Hún sýnir okkur inní sólina, segir að sólin sé sín.
Lyftan var biluð, húsvörðurinn kallaði mig svín.
Sagðist hata alla poppara, ég hélt hann væri að gera grín.
Ég sagðist að ég væri að heimsækja stúlku hún væri unnusta mín.
Hann sagði mér er nákvæmlega sama þó hún sé ekki stúlkan þín.
Þegar ég bankaði á dyrnar opnaði vofan þín.
Hún sagði þú varst bara draumur, ég hef aðeins séð þig í sýn.
Ó, ég elska þig, ég vil ekki vakna
Svartur afgan, drauma minna ég sakna.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
- Bubbi - Fingraför (1983)
- Bubbi - Sögur 1980-1990 (1999)
- Bubbi - Lögin mín (2006)*
- Bubbi - Fingraför (2006)*
- Bubbi ; Stríð og friður - 06 06 06 (2006)*
- Ýmsir - 100 bestu lög lýðveldisins (2008)
- Bubbi - Sögur af ást landi og þjóð 1980 - 2010 (CD & DVD, 2010)
Í flutningi annara á eftirtöldum útgáfum
- Papar - Leyndarmál frægðarinnar (1999)
Athugasemd
Á 2006 útgáfu plötunnar Fingraför er Afgan meðal aukalaga og er þar notast við upprunalegt heiti lagsins Svartur Afgan.