Main Header

Dýrðin er þín

 

Bubbi - 06.06.06
06.06.06 2006

Lag og texti: Bubbi Morthens

Jesús Kristur er lífsins ljós
lýsir mér veginn minn.
Orð Guðs grær sem rós.
Í garði Drottins frið ég finn.

Ó Drottin sólin skín.
Ó Drottin dýrðin er þín.
Ó Drottin sólin skín.
Ó Drottin dýrðin er þín.

Drekkur þú af lífsins lind
lifir þú í engri synd.
Slítur af þér óttans bönd
æðrulaus með styrka hönd.

Ó Drottin sólin skín.
Ó Drottin dýrðin er þín.
Ó Drottin sólin skín.
Ó Drottin dýrðin er þín.

Í myrkri var ég móður, sár
í myrkri gekk ég í sautján ár.
Frjáls finn ég kraftinn þinn
ljósið skín á veginn minn.

Ó Drottin sólin skín.
Ó Drottin dýrðin er þín.
Ó Drottin sólin skín.
Ó Drottin dýrðin er þín.

Líf í lausn, dýrðin er þín.
Líf í lausn, sólin skín.
Ó Drottinn sólin skín.
Ó Drottin dýrðin er þín.
Ó Drottinn sólin skín.
Ó Drottin dýrðin er þín.
Ó Drottinn sólin skín.
Ó Drottin dýrðin er þín.

Lagið má finna á eftirfarandi útgáfum

Athugasemd

Textinn hér að ofan er skrifaður upp samkvæmt hljóðvesupptöku lagsins sem kom út á Fjórum nöglum. En Bubbi flutti lagið fyrst á afmælistónleikunum 06.06.06 með örlítið öðrum texta. Við viljum meina að hér sé textinn endnalega eins og Bubbi vill hafa hann.

Please publish modules in offcanvas position.