Main Header

Alltaf einn

Bubbi - Nýbúinn
Nýbúinn 2001

Sjá myndband við þetta lag á Tónlist.is HÉR  

Lag og texti: Bubbi Morthens

Hún reyndist þér borgin bölvað víti
bekkirnir voru kaldir og harðir.
Laugavegurinn vinasnauður
þú stóðst þar oft og starðir
á bíla sem ferjuðu fólkið
og þúsund radda kliður
kæfði hugun þína.

Alltaf einn, alltaf einn
alltaf einn, alltaf einn
alltaf einn, alltaf einn
óskasteininum búinn að týna.

Samúðin kostar krónu of mikið
og kvölin er verðlaust dæmi.
Hamingjan mælist í hagnaði dagsins
og himnarnir eru guðlaust flæmi
og þú ert úr leik minn bróðir
því þúsund radda kliður
kæfði röddina þína.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.