Lag: Utangarðsmenn, texti: Gunnar Ægisson
Svartir sauðir glatað fé
týndur hirðir, háð og spé.
Kirkjan öll úr plasti er
kross úr áli, Kristur úr tré.
Biblían á míkró-filmum
tölvustýrðar hugvekjur
boðskapurinn rúllar eins og valtari.
Jón, - Jón pönkari þjónar fyrir altari.
Sóknarbörnin sitja í leðurstólum
með stillanlegu baki og dæsa við.
Bryðja saltkex, smella fingrum
í takt við innbyggt diskóið.
Jón er í steik, hvað á hann að segja
hverju má hér bæta við.
Liðið ropar, strýkur um kviðinn
Jón, Jón, Jón, Jón pönkari þjónar fyrir altari.
Orð hans mælast óðar illa fyrir,
hann svívirðir okkur, ég segi það með,
hann rakkar niður samfélagið,
öryggi, tekjur og fasteignaveð.
Við neglum hann, neglum hann fastan á krossinn
og brosum meðan honum blæðir út.
Dauðans gefum honum kossinn
Jón pönkari hangir fyrir altari.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
- Bubbi - Ísbjarnarblús (1980)
- Utangarðmenn - Í upphafi skyldi endirnn skoða (1981)
- Ýmsir - Nælur (1998)
- Utangarðsmenn - Fuglinn er floginn (2000)
- Bubbi ; Utangarðsmenn - 06.06.06 (2006)*
Athugasemd
Lagið sem kemur frá sólóplötu Bubba; Ísbjarnarblús er talið marka fæðingu rokksveitarinnar Utangarðsmenn. Og er eitt þeirra laga sem hefur hlaupið á milli platna merktum báðum aðilum. Þó er um sömu hljóðritun lagsins að ræða nema á 06.06.06 sem er auðvitað upptaka frá tónleikunum í Höllinni