Lag og texti: Bubbi Morthens
NÓTA, frá plötunni Línudans: Það er full ástæðaað benda á það að geðspítalar eru að yfirfyllast sökum hryllilegs ástands í þjóðfélaginu í dag.
Hvernig er að vakna, sjá skugga líða á brott?
Það er einhver bak við dyrnar, þú finnur á þig er horft.
Draugarnir eru flúnir úr hvítu skálinni.
Hvernig er að vakna upp með fingraför á sálinni.
Úti hamast vindurinn þú kúrir þig undir sæng.
Á glugganum hamast stúlkan þín eins og hrafn með brotinn væng.
Þú þorir ekki að opna, í augunum sérðu blóð.
Fyrir utan heyrir fæturna traðka paranoiu slóð.
Angurværir tónar nálgast ofur hægt.
Barnið í hjarta þínu löngu orðið er hrætt.
Búkar með engin andlit stjórnlaust líða um
ó, ef aðeins aftur gætir náð ljúfu draumunum.
Þú manst eftir konunni á horninu sem seldi
mönnum tár, mönnum sem voru dofnir
höfðu ekki grátið öll sín ár.
Hún er hætt að koma, þurr augun laugar ei meir
uppsprettan er þurrausin, en það vita ekki þeir.
Hvernig er hægt að vakna sjá skugga líða á brott
skugga sem ekkert eftir skilja, samt krefjast að á þá sé horft?
Draumarnir eru flúnir úr hvítu skálinni.
Ó segðu mér hvernig er að vakna með fingraför á sálinni?
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum