Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Ballaðan um bræðurna

Lag og texti: Bubbi Morthens

Bubbi - Þorpið (2012)
Þorpið (2012)

Fjaran togaði í bræður tvo sem vildu leika sér
Aldan hjalaði saklaus, sólin skein á gler
Allan daginn sér undu glaðir með skeljarnar
á meðan norðanvindurinn ýfði upp öldurnar.
 
Um kvöldið komu ekki heim út í rökkrið pabbi fór
kallandi út í myrkrið, kominn var haugasjór
Hann æddi niður í fjöruna en fann þar enga slóð
Brimið flæddi upp á garðinn þar sem hann fölur stóð.
 
Við hrópuðum út í sortann en enga hjálp var að fá
Uppi á steini sátum við kallandi ykkur á
Aldan kom, við urðum hræddir mamma mín
Fyllti síðan vitin, tók okkur heim til sín.
 
Fjöruna gengu mennirnir, gengu dag og nótt
Ekki einni sálu í þorpinu var þá daga rótt
Síðan dofnaði vonin, sorgin kom köld
með skuggalanga fingur og sín svörtu tjöld.
 
Föður bræðranna dreymdi draum þar sem hann sá
þá liggjandi í hellisskúta heimilinu rétt hjá
Í fangi hvors annars þeir lágu, augu hans urðu aum
Í þrjár nætur til viðbótar hann dreymdi sama draum.
 
Við hrópuðum út í myrkrið en enga hjálp var að fá
Uppi á steini sátum við kallandi ykkur á
Aldan koma við urðum svo hræddir mamma mín
Fyllti síðan vitin, tók okkur heim til sín.
 
Hann fór á fjórða degi og fann þá á þeim stað
sem hann sá í drauminum, hann þakkaði drottni það
Í sandinum þeir lágu, andlitin friðsæl að sjá
Hafið þennan dag var slétt og aldan blárri en blá.
 
Við vöknuðum og sólin skein svo undur skær
skein á græna haga, yfir öllu fagur blær
Pabbi og mamma, drottinn dró okkur í var
Í drottins garði göngum nú, við bíðum ykkar þar.


Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

 

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.