Lag og texti: Bubbi Morthens
Inn á sviðið sporin stígurðu eitt og eitt
efalaust sérðu eitthvað þó ég sjái ekki neitt.
Með höndina á gítar sem gefur engin hljóð
gatan drukkið hefur í sig öll þín vökuljóð.
Þú komst við í víti, það hef ég heyrt
á hraða sem fáir getað hafa keyrt.
Gítar þinn treystir á þína fimu fingur
þeir falla bláu tónarnir meðan sálin syngur.
Langir eru dagarnir sem dunið hafa á
dofinn líkt og nóttin særður hvarfstu frá.
Það snerist allt um drauma og dreypa víni á
dansa svo inn í myrkrið með hjartað fullt af þrá.
Nýja tilveru þráðir þú, ný og betri ár
að nýtt líf gæti hjálpað þér að lækna öll þín sár.
Öngvum hefur dugað að flýja sjálfan sig
sennilega veistu, líkt gildir um þig.
Gömul þula segir trúin flytji fjöll
að fiskimannsins hjarta sé stærra en konungshöll.
Um dópið vitum báðir, það býður engin svör
það blekkir aðeins tónana og skilur eftir ör.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





