Lag og texti: Bubbi Morthens
Þegar hverfa skýin og skuggar verða langir
og skolgráar blokkir fá lit
þá stari ég út um gluggann og get ekki annað
en gapað, jú alveg bit.
Esjan er komin í klæðin sín fínu
kvennleg er hún sjáðu þessa línu
Útsýnið er fallegt
útsýnið er fallegt
héðan sem ég sit.
Kímin þú situr útí sólinni og brosir
með sumarið í augum og á himni ekkert ský
börnin sofa ennþá og útvarpið það malar.
Allt sem mér er kærast er þessu húsi í.
Þegar hverfur birtan og bláleita húmið
birtist augum þínum í
og þú ilmar af sólskini, sjó og þara
sumarnóttin er mjúk og hlý.
Ástin mín er komin í klæðin sín fínu
kvennleg er hún sjáðu þessa línu
útsýnið er einstakt
útsýnið er einstakt
þaðan þar sem ég bý
Mjúkt þú raular í rökkrinu og brosir
réttir mér lófann og hvíslar já
í brjósti mínu er friður sem fylllir mig gleði
og ég fagna hverjum degi sem ég vakna þér hjá.
Lagið má finna á eftritöldum útgáfum