Lag og texti: Bubbi Morthens
Orðin eins og litir og málverk til mín koma
móðurlausa stafi í fóstur ég tek.
Bókin er galdur sem geymir sjálfan tímann
í skjóli þíns huga þar finnur hún þrek.
Bókin er og verður þinn vinur
bókin er sem svalandi lækur.
Og ég segi það upphátt
og ég hvísla það í hljóði
að ég elska bækur.
Hve lífið yrði fátækt ef fyndust öngvir pennar
sem færðu okkur bækur eða ljóð að gjöf
hve lífið yrði sorglegt ef sjónvarp væri eina
siglingin um hugans stóru úthöf.
Vinsældalistar
#31. sæti DV - Íslenski listinn (22.11.1996) 3. vikur á topp 40
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum