Main Header
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Braggablús

Lag og texti: Magnús Eiríksson

Ein í bragga, Magga, gægist út um gluggann,
bráðum sér hún Skugga-Baldur skunda hjá.
Enn einn túrinn, stúrinn, olíu á skúrinn
er erfitt nema fyrir fjandans aura að fá.
Í vetur betur gekk henni að galdra, til sín glaða og kalda karla
sem oft gáfu aur, en Magga í sagga, situr ein í bragga,
á ekki fyrir olíu er alveg staur.

Fyrst kom Bretinn, rjóður, yndislega góður
þá bjó hún Magga á Borginni í bleikum kjól.
Svo kom kaninn, þaninn, kommúnístabaninn
þá kættist Magga ofsalega og hélt sín jól.
Svo færðist aldur yfir eins og galdur
og ávallt verra og verra varð í karl að ná.
Nú er Magga, stúrin, því olíu á skúrinn
er erfitt nema fyrir fjandans aura að fá.


Vinsælustu lögin
#1. sæti DV - Rás 2 (22.6.1986) 8. vikur á topp 10
#8. sæti DV - Bylgjan (19.9.1986) 3. vikur á topp 10

 

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Gunnar Þórðarson ; Bubbi - Reykjavíkurflugur (1986)
Athugasemd

Þetta víðfræga lag Magnúsar um Möggu kom fyrst út á Mannakornsplötunni Í gegnum tíðina árið 1977.

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.

Please publish modules in offcanvas position.