Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Þegar tíminn er liðinn

Lag og texti: Bubbi Morthens

Ég er búinn að vera hér í átján ár.
Allt hefur sitt upphaf og endi.
Dýrmætt er lífið og litur augnanna var blár .
Í dauðann manninn ég sendi
í dauðann manninn ég sendi.

Fyrstu þrjú árin gerðist ekki neitt.
Ég lokaði mig dofinn bara inni.
Tíminn hann leið ekki og ég gat engu breytt
og ég veit að dauðinn hefur fullkomið minni
og ég veit að dauðinn hefur fullkomið minni.

Á morgun, á morgun opna þeir upp á gátt
opna drauma, stóru hliðin.
Ég er hræddur við lífið og í hvaða helvítis átt.
gengur maður þegar tíminn hér er liðinn.

Steypa hellur, lyfta lóðum er jú
það sem menn hér inni eru að gera.
Og vaka um nætur hvísla ástin hvar ert þú?
Harka af sér og bryðja stera.

Aldrei sýna ótta, ávallt vera kúl.
Alveg sama á hverju sem gengur.
Þó ginið sé opið og lyktin úr því fúl
skaltu muna þú ert ekki lítill lengur
skaltu muna þú ert ekki lítill drengur.

Á morgun, á morgun opna upp á gátt
Opna grænu hliðin.
Ég er hræddur Ó, segðu mér í hvaða átt
gengur maður þegar tíminn hér er liðinn
gengur maður þegar tíminn hér er liðinn.

Ég hef séð menn koma kolaða inn
eftir keyrslu dauðans á femma.
Stöff sem dræpi ljón ef það tæki það inn
Ég hef séð dauðann í klefa lífið hremma
ég hef séð dauðann í klefa lífið hremma.

Öll árin hef ég óttast óttast það eitt
koma út í heim sem ég þekki ekki.
Ég er fullur af sekt og ég get engu breytt
og hver dagur færir mér nýja hlekki
og hver dagur færir mér nýja hlekki.

Í dag, í dag opna þeir upp á gátt.
Opna Litla Hrauns hliðin.
Hvert á ég að fara, og í hvaða helvítis átt
nú þegar tíminn hér inni er liðinn
nú þegar tími minn hér inni er liðinn.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Bubbi - Fjórir naglar (2008)

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.