Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Myndbrot

Lag og texti: Bubbi Morthens

Þar sem auðnin og sandur þekur allt.
Þar sem sólin skín en samt er þar kalt.
Þar sem jökullinn hörfar hvern einasta dag
heyrði ég sungið svo fallegt lag.
Það var engill sem sat á svörtum stein 
röddin var svo tær björt og hrein.
Ég vil þig, ég vil þig ekki
ég vil þig, ég vil þig ekki
ég sat og hlustaði um stund.

Þar sem brimaldan flæðir upp á land.
Þar sem æska þín er grafin í sand.
Þar sem strákar og stelpur fóru í slag
heyrði ég sungið svo fallegt lag.
Það var engill í rólu að róla sér
og röddin ljúfa settist í hjarta mér.
Ég vil þig, ég vil þig ekki
ég vil þig, ég vil þig ekki
ég sat og hlustaði um stund.

Þar sem fortíð og framtíð mætast nú.
Og hið fagra og ljóta byggja þar brú
yfir óttann þar sem er dagurinn þinn
heyrði ég aftur fallega sönginn
Þar var engill sem sat uppi í grænni hlíð
og röddin var svo mjúk, heit og blíð.
Ég vil þig, ég vil þig ekki
ég vil þig, ég vil þig ekki
ég sat og hlustaði um stund.

Þar sem dauðinn og lífið leika hvern dag
leggja allt undir fyrir hvern einasta slag.
Þar sem óskir þínar fljúga svo hátt
heyrði ég sungið svo dapurt og lágt.
Það var engill sem átti þennan bláa söng
og röddin minnti mig á kvöldin löng.
Ég vil þig, ég vil þig ekki
ég vil þig, ég vil þig ekki
ég sat og hlustaði um stund.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Bubbi - 06.06.06 (2006)*
Bubbi - Fjórir naglar (2008)
Athugasemd

Á plötunni 06.06.06 er lagið skráð undir heitinu Engill í rólu. en hér er textinn uppsettur eftir hljóðversupptökunni á Fjórum nöglum.

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.