Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Kannski varð bylting vorið 2009

 

Ego - Kannski varð bylting vorið 2009
Kannski varð bylting vorið 2009

Lag og texti: Bubbi Morthens

Ráðherrann var sagður ekki standa sig
bankastjórinn hvæsir ekki benda á mig
Krónan minnir á slappan tómann lók
Skákin er byrjuð en það vantar einn hrók
Brendu börnin á fiðlurnar sarga
Ekki mér að kenna þingheimur að garga
Bylting lá í lofti árið 2009
á Nesinu beið fólkið eftir vorsins kríu
sem var á leiðinni en villtist oní öldu
og drukknaði og vorið það andaði köldu.

Hatur og tortryggni tóku af okkur ráðin
tók einhver upp lafþunnan þráðinn
sagði: Þetta var glötuð ræða
Hvar var byltingin sem átti allt að græða.
Hulin andlit í máttvana reiði
og einstaka spurning: Hvað er hér á seiði?
Bylting lá í loftinu vorið 2009
vetrarkulin hjörtun þráðu aðeins hlýju
Atvinnuleysið sem stjórnlaus eldur
Íslenski refurinn var svangur og hrelldur.

Alþjóðargjaldeyrissjóðurinn læsti okkur inni
aurgoðarnir virðast hafa tapað minni
Á þingvöllum vinurinn vældi í kjarri
Fólkið missti húsin sín, krónunni fjarri
Bankar hækka lánin með glóandi tangir
og dagarnir urðu óendanlega langir
Bylting lá í lofti vorið 2009
Hver var á þeim tíma ekki kominn með klýju?
Bylting, einhver sagði, Hún bara kom og fór
Vill einhver segja mér var hún lítil eða stór?

Verðbréfarándýrin hurfu á einni nóttu
eins og bankabréfin sem draugarnir sóttu
og brendu í beinni sparnað afa og ömmu
og skuldfærðu allt á barnið, pabba og mömmu
Og enginn má öskra, verða verulega reiður
þá verður ráðherrann hræðilega leiður
Bylting lá í lofti vorið 2009
okkur var sagt kannski 2010
yrðu gjaldþrotin færri og fólk héldi velli
Ekki nema örfáir sem þyrftu að búa í helli.

Skuldirnar uxu, múgurinn var sviðinn
Einhverstaðar var einhver að strjúka feitann kviðinn
Ærlegur og bera ábyrgð, meigum við heyra
og sá sem ætti að nota orðin lýgur bara meira
og þvælir um að þjóðin verði að standa saman
í þjóðargjaldþroti getur verið gaman.
Bylting lá í lofti vorið 2009
þjóðin lá með krónunni í skítugri stíu
Ég sá múrstein fljúga en enga kvassa teina
Ráðherrann fölur sagði: Þau eru að reyna.

Sá sem missir heimilið og vinnuna um leið
og sparnaðinn í bankanum hann velur þá reið
til móts við heiftina og slást í hennar för.
Hann hefur rétt á að berjast og skjóta sinni ör.
Berjast fyrir réttlæti allir ættu að gera
þó það kosti fangelsi þá verður svo að vera.
Bylting lá í loftinu vorið 2009
ímynd þjóðar útötuð í græðgisspýju
Þeir rændu land og þjóð, skófu inn að beini
en sjáfir hafa góssið sitt vandlega í leyni
Kannski varð bylting vorið 2009
Kannski komst nýtt fólk í skjól og hlýju
og bankar voru seldir gæðingum flokka
og nýjir menn byrjaðir í þjóðinni að fokka.


Vinsældalistar
#3. sæti MBL - Tónlistinn (22.1.2009) 4. vikur á topp 20, 3. vikur á topp 10
#5. sæti Tónlist.is - Netlistinn (3. vika 2009) 4. vikur á topp 10 

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.