Lag og texti: Bubbi Morthens og Mike Pollock
Ég er löggiltur öryrki
hlusta á HLH og Brimkló.
Ég er löggiltur hálfviti
læt hafa mig að fífli
styð markaðinn.
Hár mitt er vatnsþétt, gljáandi
augu mín eru svört, ég er sjáandi.
Hörund mitt slapp við bólur.
Ég framleiði, ég framleiði
samfarahljóð á spólur.
Líður þér eins og mér með stífan böll?
Það er leðurlykt í loftinu.
Næturklúbbur bað mig að stansa.
Ungfrú Ísland í ljósashowinu sagði
"komdu, komdu, komdu strax að dansa".
Vinsældalisti
#9 sæti Vísir - Vinsælustu lögin (10.10.1980) 1. vika á topp 10*
* 10.10.1980 var í fyrsta sinn birtur listi yfir vinsælustu lögin í Vísir. En nokkrar vikur voru þá síðan plata Utangarðsmanna kom út.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
- Utangarðsmenn - Ha-ha-ha (Rækjureggae) (1980)
- Ýmsir - Flugur (1981)*
- Ýmsir - Aftur til fortíðar 1970-1980 (1992)*
- Utangarðsmenn - Utangarðsmenn (1994)*
- Utangarðsmenn - Fuglinn er floginn (2000)
- Ýmsir - Óskalögin 5 (2001)*
- Úr kvikmynd - Blindsker, saga Bubba Morthens (2004)
- Utangarðsmenn - Geislavikrir (aðeins á 2005 útgáfu plötunnar)
- Ýmsir - Svona var 1980 (2008)
- Bubbi ; Utangarðsmenn - Sögur af ást landi og þjóð 1980 - 2010 (2010)
Athugasemd
Eitt þeirra laga sem fengið hefur mismunandi ritun á heiti eftir útgáfum. Þá má finna ósungna útgáfu á b-hlið fyrstu smáskífu Utangarðmanna. Á safnplötunni Flugur (1981) má finna aðra útgáfu á texta lagsins sem ekki hefur komið út annarstaðar. Þar er það leðurklædd hækja sem biður Bubba að dansa og sömu sögu er að segja á tónleikaupptöku sveitarinnar frá Svíþjóð sem kom út á plötuni Utangarðsmenn (1994) þar sem Herra Ísland biður Bubba um dansinn.
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





