Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Augun mín

 

Bubbi - Frelsi til sölu
Frelsi til sölu 1986

Lag og texti: Bubbi Morthens

Líttu ekki í augun mín.
Litlaus villtu þau stúlkum sýn.
Þær sögðu þau hrein sem brúðarlín.
Sjá svart tóm við þér gín.

Kysstu varir mínar varlega.
Varastu allt það fallega
sem rignir úr spilltum munni.
Það rífur sem þyrnirunni.

Lifað hefur áður langar nætur Rússlands.
Leið þín stefnir þangað það sýnir lófinn þinn.
Við þokuslungna vegi vættir stíga dans.
Varast skaltu að stoppa þó fölva slái á kinn.

Heitur titraði barmur þinn.
Heitur votur var kossinn þinn.
Ástin döggvar augu þín.
Ástin glepur sýn.

Það heimsækja mig draumar í hyldýpið mitt svarta.
Ég hræðist ekki framar þann álagadóm.
Áttavilltur geng ég oft um holar nætur.
Ein átt þú að hljóta mitt dimmrauða blóm.

Horft hef ég í augun þín
hulin bakvið hrímgrá ský.
Birtust mér þar örlög mín
blástjörnum tveimum í.


Vinsældalistar
#1. sæti DV - Rás 2 (12.12.1986) 12. vikur á topp 10
#1. sæti DV - Bylgjan (5.12.1986) 11. vikur á topp 10 

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.