Main Header

Minning

 

Bubbi - 1000 kossa nótt
1000 kossa nótt 2003

Lag og texti: Bubbi Morthens

Ég horfði inn í sjálfan mig og fann falinn þar
fölan strák með lítið hjarta og á vörum þetta svar:
Ég á nóg, ég á nóg, ég á nóg
ég á nóg af göllum.

Ég man eftir skólanum skriftblindur – lamaður
af skelfingu, ég beið eftir að verða úthrópaður.
Ég á nóg, ég á nóg, ég á nóg
ég á nóg af göllum.

Ég flakkaði þorp úr þorpi og stálaði minn hníf.
þjakaður – mig dreymdi um miklu betra líf.
Dag einn fann ég útgöngu og lagði strax af stað.
Efinn gat ekki stoppað mig, ég hafði alltaf vitað það.
Ég á nóg, ég á nóg, ég á nóg
ég á nóg af kostum.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.