Lag og texti: Bubbi Morthens
Milli skýja logar máninn, nóttin þefar blóð
þráum við virkilega frið?
Einu sinni í mánuði nemum þau hljóð
sem eiga að gefa okkur grið.
Fjölmiðlar selja okkur lykil heim á borð
sjónvarpið sýnir okkur hrylling og morð.
Atvinnuleysi, verðbólga, finna þann mann
sökudólginn benda á: Þetta er hann!
Munum við hvað fór að vaxa þrjátíu og tvö?
Minnumst við ógnanna, styrjaldar númer tvö?
Eins og sinueldur firringin er laus
fjölmiðlar þvo þinn haus.
Þangað til þú sérð það erum við
þá er það sjálfsagt að lifa við frið.
Í Evrópu þeir segja: Það er enga vinnu að fá.
Þeir lituðu taka djobbin, drepum þá.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





