Lag og texti: Bubbi Morthens
Inní réttarsalnum sat hann
hokinn með höfuð grátt.
Í frjálsu falli sveif hann
og fall hans var hátt.
Dómarinn hneykslaður
kvað upp köldum róm.
Víti til varnaðar
við fellum þennan dóm.
Sá yðar sem syndlaus er
kasti fyrsta steininum.
Hjálp hrópaði maðurinn
með hendur járnum í.
Ég er saklaus ég segi það
mitt böl er þungt sem blý.
Fólkið það fagnaði
fréttin barst um borg.
Einhverstaðar er heimili
og hjörtu full af sorg.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





