Lag og texti: Bubbi Morthens
Við vorum þrettán við borðið, bræðurnir og hann
í brjósti mínu hjartað fullt af kvíða
á þeirri stundu var ég ákveðinn að hætta við
þegar hann spurði mig eftir hverju ertu að bíða.
Ekki tefja, þú veist, tíminn þinn líður
lögmálið verður að uppfylla
þá skildi ég allt, mér var ætlað að svíkj’ann
þeir sögðu hann lýðnum vera að spilla
Svo ég stóð upp og augu hinna fylgdu mér til dyra
úti í myrkrinu kom efinn sem mara
ég heyrði í þeim hrópin er ég gekk í burt
og ég fór þangað sem ég átti að fara.
Eftir að mér var borgað talaði faðir hans til mín
trú þín er mikil og hreint þitt hjarta
þú gerðir það sem þér bar að gera
því munt þú í kvöld líta ljósið hans bjarta.
Mitt hlutverk var ákveðið alveg frá byrjun tímans
allt var skrifað, jafnvel sjálfur kossinn
hann vissi það sjálfur frá því hann sá mig fyrst
það yrði ég sem seld’ann á krossinn.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





