Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Móðirin

 

Bubbi - Tvíburinn
Tvíburinn 2004

Lag og texti: Bubbi Morthens

Sem lítill drengur ljós mitt og yndi
öðruvísi alltaf varst þú.
Fólkið í þorpinu forviða spurð:
Hvaðan kemur þessi viska og trú?
Það hrópaði og spáði og kvartaði sárt:
Hann boðar ógæfu það er alveg klárt.

Faðmur minn var ennþá þitt skjól.

Fulltíða maður ljós mitt og yndi
óbugaður alltaf varst þú.
Fólkið það sagði sögur af þér
sonur Jósefs hann boðar nú trú.
Ég man þegar Jakop bróður þínum blæddi
þú brostir lítil hnokki og sárið hans græddir.

Faðmur minn var ennþá þitt skjól

Ég stend og stari á andlitið beinhvítt.
þeir standa og hæða þig, hvar er nú guð þinn.
Hjartanu blæðir, sjáið þetta er sonur minn
sjáið þetta er sonur minn.

Ég man þig hrópandi, mamma ég get það
þótt hamarinn væri of þungur.
Sex ára gamall vildir verða smiður
og þú sagðir: Ég er ekki of ungur.
Ég tók þig í fangið og kyssti þína kinn
og þú sagðir: Ég verð alltaf strákurinn þinn
og nú ert þú mitt trausta skjól.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.