Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Skyttan

Lag og texti: Bubbi Morthens

Eins og næfurþunnt svart silki
skríður nóttin til mín inn.
Að njóta hennar er ekki mögulegt
allavega ekki fyrst um sinn.
Föl sem genginn dagur
fellur hún á skuggann minn.
Hvíslar: Fegurstur allra er feigur maður
sem fela kann ótta sinn.

Ég er ekki viss um hvað skal varast
það vefst allt fyrir mér.
Hvort nojan sé falið flassbakk
sem fær að dafna hér.
Hún læðist og læsir klónum
leitar í húminu og sér
allt það ljóta sem löngum var hulið
lengst inní huga mér.

Dagarnir fæðast andvana
dauft er í Reykjavík.
Þú dansar einn í tóminu
og vaknar liðið lík.
Það syngur í höfði mér bergmál
svo kemur þessi bið.
Að sefa hjartað á slíkri stund
er ekki mín sterka hlið.

Þú veist það vel að dauðinn
er fyrir drottni bara heví rómantík.
Og draumarnir hans Gabríels
eru aðeins slímug frík.
Þó ástandið sé viðkvæmt
þá vantar mig öruggan stað.
Vertu mér góð og staldraðu við
því það er eitthvað að.

Ég er ekki viss um hvað skal varast
það vefst allt fyrir mér.
Hvort nojan sé falið flassbakk
sem fær að dafna hér.
Hún kemur og klórar í mig
klók hún veit og sér.
Lúmsk hún efanum læðir
lengst inn í huga mér.

Ég er ekki viss um
ég er ekki viss um
ég er ekki viss um.


Vinsældalistar
#2. sæti DV - Rás 2 (27.3.1987) 7. vikur á topp 10
#2. sæti DV - Bylgjan (20.3.1987) 4. vikur á topp 10


Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

Í flutningi annara á eftirtöldum útgáfum

  • Papar - Leyndarmál frægðarinnar (2004)

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.