Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Jón pönkari

 

Bubbi - Ísbjarnarblús
Ísbjarnarblús 1980

Lag: Utangarðsmenn, texti: Gunnar Ægisson

Svartir sauðir glatað fé
týndur hirðir, háð og spé.
Kirkjan öll úr plasti er
kross úr áli, Kristur úr tré.

Biblían á míkró-filmum
tölvustýrðar hugvekjur
boðskapurinn rúllar eins og valtari.
Jón, - Jón pönkari þjónar fyrir altari.

Sóknarbörnin sitja í leðurstólum
með stillanlegu baki og dæsa við.
Bryðja saltkex, smella fingrum
í takt við innbyggt diskóið.

Jón er í steik, hvað á hann að segja
hverju má hér bæta við.
Liðið ropar, strýkur um kviðinn
Jón, Jón, Jón, Jón pönkari þjónar fyrir altari.

Orð hans mælast óðar illa fyrir,
hann svívirðir okkur, ég segi það með,
hann rakkar niður samfélagið,
öryggi, tekjur og fasteignaveð.

Við neglum hann, neglum hann fastan á krossinn
og brosum meðan honum blæðir út.
Dauðans gefum honum kossinn
Jón pönkari hangir fyrir altari.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

Athugasemd

Lagið sem kemur frá sólóplötu Bubba; Ísbjarnarblús er talið marka fæðingu rokksveitarinnar Utangarðsmenn. Og er eitt þeirra laga sem hefur hlaupið á milli platna merktum báðum aðilum. Þó er um sömu hljóðritun lagsins að ræða nema á 06.06.06 sem er auðvitað upptaka frá tónleikunum í Höllinni 

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.